Jóhanannn

Það er alveg með ólíkindum hvað hún blessaða Jóhanna er blind og skert á sjón og heyrn. Það er alveg sama hversu of er sagt og ritað að vilji þjóðarinnar er ekki að komast inn í Evrópusambandið en samt heldur hún áfram að þrjóskast í þeirri von að það verði viðsnúningur.  En úr þessu í annað.

Það er og ætti að vera hennar hlutverk sem þjóðarleiðtogi að standa upp hnakkreist og segja við heiminn að ICE SAVE sé ekki vandamál íslensku þjóðarinnar að þeir sem vilja neyða íslensku þjóðina til að bera þá skuldarklafa ættu að hugsa sig um og að rétt skal vera rétt samkvæmt Evrópskum lögum.

En það er sama hvað hún týstar, það hlustar enginn á hana og hvers vegna  ekki? Jú það er einfaldlega vegna þess að íslenska þjóðin er ekki tilbúin að gangast við skuldamyndun íslenskra óreiðumanna og mun ekki gera það.  Okkur var einfaldlega kennt það æsku. Þannig er nú íslenskt uppeld.

Við íslenska þjóðin eigum ekki að hegða okkur eins og við séum SAKAMENN.

Í lokin vil ég bara segja það að ég vona svo sannarlega að hún Jóhanna fái bara vinnu í Brussel og hætti þessu vonlausa hlutverki sem hún þykist vera að sinna og það er að hugsa um íslensku þjóðina. Hopeless,,,gjörsamlega hopless.


mbl.is Ræða aðild Íslands í febrúar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Alveg sammála þér hérna.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 4.2.2010 kl. 22:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband